Nailberry fótakrem

4.295 kr.

Á lager

Vörunúmer: OR210 Flokkur: Merkimiðar: , , ,
Lýsing

Ríkulegt og endurnærandi fótakrem | 99% náttúruleg innihaldsefni.

Gefðu fótunum þá næringu og umhyggju sem þeir eiga skilið með þessu kremi sem sameinar ríka áferð og létta formúlu.

Með 99% náttúrulegum innihaldsefnum dregst kremið hratt inn í húðina og skilur eftir sig mýkt og sléttleika. Það inniheldur hýalúrónsýru, shea smjör og sérstaka blöndu af eucalyptus og piparmyntu ilmkjarnaolíum – sem fríska upp á þreytta fætur og hjálpa til við að koma í veg fyrir þurra og sprungna hæla.

Fullkomið til daglegrar notkunar – fyrir mjúka, vel hirtar fætur.

Nánar
Vörulína

Stærð

Vörumerki

Um vörumerkið
Nailberry eru sannkölluð lúxus naglalökk, þau hleypa í gegn raka og súrefni. Eru eiturefnalaus, vegan, næra, anda, endast og þykja framúrskarandi smart. Fagfólkið keppist um að dásama Nailberry L’Oxygéné. Þau hafa hlotið hina kærkomnu vottun PETA “cruelty free” og þau eru vegan. L’Oxygéné eru án ALLRA, eða 12 skaðlegustu efnanna sem almennt er að finna í naglalökkum. Þau eru: Formaldehýð Túlín Kemísk kamfóra DPB (skaðleg þalöt) Formaldehýð kvoðu (resin), xylene, ethyl tosylamide, triphenyl phosphate, alkóhóls, parabena, dýraafurða & glútens (sem er ekki sjálfgefið). Nailberry L’Oxyéne henta því ekki bara flestum heldur öllum. Þar með talið óléttum konum, börnum og líka þorra þeirra sem þjást af allskyns ofnæmum. Þau sameina í senn fegurð og hreinleika og það ekkert gefið eftir þegar kemur að heilsusamlegum snyrtivörum. Neglurnar koma vel nærðar undan Nailberry L’Oxygéné. Þau hafa unnið til virtra verðlauna sem eru : Besta alþjóðlega bjútí heilsuvaran (Natural Health International Beauty Award 2016) og aftur komið í úrslit fyrir 2017. Nailberry naglalökkin eru hugarsmíð Soniu Hully sem hóf að þróa Nailberry fyrir fimm árum. Hún ákvað strax í upphafi að gefa engan afslátt, hvorki af heilsunni né hátískunni. Í dag hafa Nailberry naglalökkin öðlast sess sem hátískuvara sem notast er við á tískuvikum í stórborgum.