“Fiskastykki Skata Gult” hefur verið bætt í vörukörfuna þína. Skoða körfu
Fiskastykki Þorskur Bleikt
2.990 kr.
Á lager
Lýsing
Gæða viskastykki með fiskamynstri sem kallast því skemmtilega nafni „Fiskastykki“ Sá guli er örlagaþráður í íslenskri sögu og hefur á samviskunni að hafa dregið okkur inní stríð. Já Þorskastríð við granna okkar Breta og það nokkrum sinnum. Eftirsóttur er hann og hefur haldið í okkur tórunni frá landnámi.
Efni: 100% Bómull
Stærð: 50 x 70 cm
Nánar
Litur |
Bleikt ,Hvítt |
---|---|
Stærð | |
Vörulína | , , |
Vörumerki |
Um vörumerkið
Hönnuður fiskastykkjanna, :Orn Smári dregur innblástur sinn úr hafinu. Ungur var hann sendur vestur á firði þar sem eðlileg afþreying fyrir unga drengi var að sitja saman á bryggjusporðinum og dorga. Að fara með
frændum á smáum bát með utanborðsmótor að vitja grásleppuneta var hin mesta upplifun.
Fisksalarnir og sjómennirnir Gísli Ben, pabbi hönnuðarins og Benjamín Jónsson, afi hans hafa haft meiri áhrif en þá grunaði þó svo að :Orn Smári nálgist hráefnið á annan hátt en þeir. Fisksölum fylgdu óteljandi ferðir suður með sjó að sækja ferskan fisk ýmist seint að kvöldi eða eldsnemma að morgni. Uppskipun var með einföldum hætti, beint á pallbílinn, Chevrolet 1952 árgerð og segl strengt yfir.
:Orn Smári gekk í eigin reynslubrunn af síldar-vinnu í Kópavogi um miðjan 7. áratuginn þegar hann hannaði sitt fyrsta frímerki áratugum síðar. Síst átti hann von á að fisksala myndi liggja fyrir honum.