fbpx

Vörumerki: :Orn Smári

Hönnuður fiskastykkjanna, :Orn Smári
dregur innblástur sinn úr hafinu. Ungur var
hann sendur vestur á firði þar sem eðlileg
afþreying fyrir unga drengi var að sitja saman
á bryggjusporðinum og dorga. Að fara með
frændum á smáum bát með utanborðsmótor
að vitja grásleppuneta var hin mesta upplifun.

Fisksalarnir og sjómennirnir Gísli Ben, pabbi
hönnuðarins og Benjamín Jónsson, afi hans
hafa haft meiri áhrif en þá grunaði þó svo að
:Orn Smári nálgist hráefnið á annan hátt en
þeir. Fisksölum fylgdu óteljandi ferðir suður
með sjó að sækja ferskan fisk ýmist seint að
kvöldi eða eldsnemma að morgni. Uppskipun
var með einföldum hætti, beint á pallbílinn,
Chevrolet 1952 árgerð og segl strengt yfir.

:Orn Smári gekk í eigin reynslubrunn af síldar-
vinnu í Kópavogi um miðjan 7. áratuginn þegar
hann hannaði sitt fyrsta frímerki áratugum
síðar. Síst átti hann von á að fisksala myndi
liggja fyrir honum.

Við notum kökur til að bæta síðuna okkar. Geymdar eru kökur með heimsóknartölfræði sem eingöngu eru notaðar af Motivo.