fbpx

Iittala Ultima thule skál 37 cm

32.995 kr.

Aðeins 2 eftir á lager

Lýsing

Þessi stóra skál nýtur sín vel á matarborðinu en skemmtilegt er að nota hana til þess að bera fram salat og eftirrétti. Einnig er hún sérlega fallegt stofustáss á borði. Ultima Thule línan var hönnuð af Tapio Wirkkala árið 1968. Við hönnun línunnar sótti Wirkkala innblástur til Lapplands en línan vísar í bráðinn klaka. Sagan segir að til hafi verið eyjan Ultima Thule sem staðsett var langt í norðri. Hún hafi verið grafin í ís og snjó og þar hafi sólin aldrei sést. Ultima Thule vörulínan er öll framleidd í Finnlandi. Vörulínan inniheldur m.a. glös, diska, skálar, karöflur og kertastjaka.

Iittala er finnskt hönnunarfyrirtæki sem hannar og framleiðir skrautmuni og borðbúnað fyrir heimili. Saga Iittala hófst árið 1881, en til að byrja með framleiddi fyrirtækið margskonar glervörur. Í byrjun 20. aldar færði fyrirtækið út kvíarnar með því að hefja framleiðslu á leirvörum og síðar á stálvörum. Hugmyndafræði Iittala er mótuð að miklu leiti eftir hönnuðinum Kaj Franck sem sagði að allir hlutir ættu að vera nytsamlegir, endingargóðir og hagnýtir.

Frekari upplýsingar

Litur

Clear

Stærð

37 cm

Vörulína

Ultima thule

Vörumerki

Iittala

Iittala Ultima thule skál 37 cm

Vörunúmer: AO166 Flokkar Merkingar , , ,

Nýlega skoðaðar vörur

Engin vara fannst

Við notum kökur til að bæta síðuna okkar. Geymdar eru kökur með heimsóknartölfræði sem eingöngu eru notaðar af Motivo.