Lýsing
Crush kertastjakarnir úr smiðju danska fyrirtækisins Specktrum eru fáanlegir í nokkrum litum og útfærslum. Leyfðu þeim að standa einum og sér fyrir minimalískt útlit eða blandaðu saman litum og týpum fyrir persónulegra yfirbragð.
Specktrum er danskt hönnunarmerki sem framleiðir einstaklega fallega blómavasa og kertastjaka með skemmtilegu, upphleyptu mynstri sem gefur þeim fágað og sérstakt yfirbragð.