fbpx

Humdakin handáburður 01

4.890 kr.

Á lager

Lýsing

Handáburðurinn frá Humdakin er unninn úr náttúrulegum efnum og er laus við litarefni og paraben. Handáburður 01 inniheldur hafþyrnir sem er fullur af C og E vítamíni og kamillu sem hefur róandi áhrif á húðina og gefur henni góðan raka.
Tvær helstu lækningajurtirnar sem Camilla Schram, stofnandi Humdakin notar í húðvörulínur sínar eru hafþyrnir og kamilla. Þetta er vegna þess að kamillan hefur bólgueyðandi og bakteríudrepandi áhrif og minkar kláða og ertingu í húðinni. á meðan hafþyrnirinn róar húðina og heldur henni unglegri og mjúkri.
Stærð: 300 ml.
PH gildi: 6,2-6,7
Innihaldslýsing: Aqua, Glycerin, Macadamia Integrifolia Seed Oil, Butyrospermum Parkii Butter, Caprylic/Capric Triglyceride, Cetearyl Alcohol, Glyceryl Stearate Citrate, Prunus Armeniaca Kernel Oil, Ethylhexyl Stearate, Glyceryl Stearate, Biosaccharide Gum-1, Hippophae Rhamnoides Fruit Extract, Chamomilla Recutita Flower Extract, Tocopheryl Acetate, Carbomer, Ethylhexylglycerin, Phenoxyethanol, Sodium Benzoate, Potassium Sorbate, Lactic Acid, Sodium Hydroxide, Perfume
Humdakin er danskt vörumerki sem býður upp á úrval af hágæða og nútímalegum hreinsivörum sem eru auðveldar í notkun, góðar fyrir húðina og áhrifaríkar. Vörurnar eru margar 100% lífrænar og án allra aukaefna. Vörulínan er innblásin af dönskum ströndum og skógum, með meðvitund um áhrif á umhverfið og er meðal annars allur textíll gerður úr GOTS vottuðum bómull og hreinsivörur ásamt sápum eru án parabena og litaefna. Humdakin línan inniheldur allskyns hreinsivörur, handsápur og handáburð ásamt gæða hekluðum viskastykkjum og borðtuskum gerðum úr 100% lífrænum bómull.

Frekari upplýsingar

Vörulína

Snyrtivörur

Stærð

300 ml.

Vörumerki

Humdakin

Humdakin handáburður 01

Vörunúmer: HUM011 Flokkar , Merkingar , , , ,

Nýlega skoðaðar vörur

Engin vara fannst

Við notum kökur til að bæta síðuna okkar. Geymdar eru kökur með heimsóknartölfræði sem eingöngu eru notaðar af Motivo.