fbpx

Bitz matardiskur svartur glans

3.590 kr.

Aðeins 1 eftir á lager

Lýsing

Matardiskurinn er 27 cm í þvermál og brúnin er 2,5 cm á hæð. Diskurinn er gerður úr leir en er með glansáferð ofan á sem kemur í nokkrum mismunandi litum. Leirinn er framleiddur úr sérstöku hráefni sem gerir hvern hlut einstakan og engir 2 hlutir eru eins þar sem leirinn hefur rispur og mismunandi mynstur í glerungnum.

Má setja í uppþvottavél, örbylgjuofn en einnig má diskurinn fara í bakarofn á allt að 220 gráður. Hægt er að fá margt fleira fallegt í línunni og litbrigðin í vörunum gerir þær einstaklega skemmtilegar og gaman er að raða litunum saman þar sem þeir falla vel hver að öðrum.

Fallegur og litríkur borðbúnaður sem hannaður er af hinum danska sjarmör Christian Bitz. Bitz er næringarfræðingur, þáttastjórnandi, metsölubókahöfundur og fyrirlesari. Hugmyndafræði hans byggir á því að fólk njóti þess að borða góðan og heilsusamlegan mat, án allra öfga, skyndilausna eða samviskubits. Vörurnar eru hannaðar þannig að þær geri fólki auðveldara að stjórna skammtastærðunum og njóta matarins.

Frekari upplýsingar

Stærð

Kremað glans

Vörulína

Diskar, Eldhúsvörur

Vörumerki

Bitz

Bitz matardiskur svartur glans

Vörunúmer: AO1808 Flokkar Merkingar , , ,

Nýlega skoðaðar vörur

Engin vara fannst

Við notum kökur til að bæta síðuna okkar. Geymdar eru kökur með heimsóknartölfræði sem eingöngu eru notaðar af Motivo.