Lýsing
Einstaklega léttur og þægilegur herrajakki, fylltur með hágæða gæsadún. Frábær jakki í alhliða útivist og innanbæjar rölt.
NÁNAR UM FLÍKINA
- Einstaklega léttur, hágæða dúnjakki úr 100% „ripstop“-pólýamíði (nælon) sem hefur þann eiginleika að rifna síður en önnur nælonefni
- Technostretch frá Pontetorto® í hliðum fyrir hámarks hreyfigetu og aukna öndun
- Fylltur með 90% gæsadúni og 10% fjöðrum og er með 800 „fill power“- einangrunargildi
- Þægilegt snið sem er síðara að aftan og hentar því vel fyrir alla hreyfingu
- Hár, þægilegur, flísfóðraður kragi sem liggur vel að hálsi
- Tveir renndir vasar að framan og vasi að innanverðu með snúrugöngum fyrir heyrnartól
- Tveggja sleða YKK®-rennilás að framan
- Alhliða jakki sem hægt er að nota í hvaða aðstæður sem er, í útivist eða dags daglega
Cintamani er íslenskt merki sem býður upp á hágæða útivistarfatnað á alla fjölskylduna.