Lýsing
Structure eru stílhrein og tímalaus sængurver sem njóta sín vel í hvaða rúmi sem er. Sængurverin eru úr bómull með satínvefnaði sem gerir þau einstaklega mjúk og notaleg.
Stærð: 140 x 200 & 50 x 70 cm
Efni: 100% bómullar satín
Þvottaleiðbeiningar: Þvoist á max 60º
Rennilás á bæði sængur- og koddaveri
IHANNA HOME er íslenskt hönnunarfyrirtæki sem var stofnað af Ingibjörgu Hönnu Bjarnadóttur árið 2008, með tilkomu Krumma herðartrés. Fyrirtækið hannar og framleiðir hágæða hönnunarvörur með grafísku ívafi. Innblásturinn kemur úr okkar nærumhverfi. Markmiðið hjá IHANNA HOME er að bjóða upp á vörur þar sem einfaldleiki, gæði og notagildi fara saman.