Lýsing
Heimiliskörfurnar eru margnýtanlegar en henta m.a. undir handavinnu, leikföng, tau, tímarit og margt fleira. Þær eru framleiddar úr filti (sem er 100% endurunnið plast) en handföngin eru svo úr leðri.
Stærð: 23L , hæð 24 cm – þvermál 35 cm
IHANNA HOME er íslenskt hönnunarfyrirtæki sem var stofnað af Ingibjörgu Hönnu Bjarnadóttur árið 2008, með tilkomu Krumma herðartrés. Fyrirtækið hannar og framleiðir hágæða hönnunarvörur með grafísku ívafi. Innblásturinn kemur úr okkar nærumhverfi. Markmiðið hjá IHANNA HOME er að bjóða upp á vörur þar sem einfaldleiki, gæði og notagildi fara saman.