Vel valið fyrir þig, heimilið og þá sem þér þykir vænt um 🤎
Skilaréttur
Þú hefur 14 daga frá því pöntunin var afgreidd til að skila vöru. Stærðarskipti og inneign kosta þig ekkert.
- Þú getur fengið aðra stærð af sömu vöru, inneign sem gildir á allt í vefversluninni eða endurgreiðslu á kortið sem þú greiddir með.
- Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í upprunalegum umbúðum. Innsigli má ekki vera rofið.
- Við sendum þér skilamiða frá Póstinum og borgum sendinguna til okkar. Ef þú velur endurgreiðslu dragast 790 kr. frá upphæðinni upp í þann kostnað. Upphaflegt sendingargjald fæst ekki endurgreitt.
- Sé varan gölluð eða þú fékkst ranga vöru færðu alltaf val um endurgreiðslu og við greiðum líka upphaflega sendingargjaldið til baka. Gallar sem koma í ljós síðar, líka eftir að skilafrestur rennur út, tilkynnir þú neðst á síðunni undir Tilkynna gallaða vöru.
Við áskiljum okkur rétt til að hafna skilum ef varan er ekki í sama ástandi og þegar hún var seld.
Passaði stærðin ekki?
Þá skiptir þú yfir í aðra stærð af sömu vöru, án kostnaðar fyrir skilin eða nýju sendinguna.
- Skráðu skilin hér fyrir neðan og veldu ástæðuna Stærðin passaði ekki.
- Veldu Skipta um stærð og nýju stærðina. Stærðir sem vantar í listann eru uppseldar.
- Við geymum nýju stærðina fyrir þig í 10 daga og sendum þér skilamiða í tölvupósti. Pakkanum skilar þú í póstbox eða á pósthús.
- Um leið og Pósturinn tekur við pakkanum sendum við nýju stærðina af stað.
Langar þig frekar í annan lit eða allt aðra vöru? Veldu þá inneign og verslaðu það sem þú vilt. Fyrsta pöntunin sem þú greiðir með inneigninni fær fría sendingu.
Skila í verslun
Þú getur líka komið með vöruna í verslun Motivo á Brúarstræti 3 á Selfossi. Veldu Skila í verslun þegar þú skráir skilin hér fyrir neðan og sýndu skilanúmerið í búðinni. Þá þarf engan skilamiða og ekkert sendingargjald dregst frá endurgreiðslu.
Svona skilar þú vöru með Póstinum
- Skráðu skilin hér fyrir neðan með pöntunarnúmeri og netfangi. Ef þú ert með aðgang getur þú líka opnað pantanirnar þínar og valið skil þaðan. Fékkstu vöruna að gjöf? Veldu þá Ég fékk þetta að gjöf.
- Skilamiðinn berst þér í tölvupósti. Settu vöruna í poka eða aðrar umbúðir. Í póstboxinu slærðu inn sendingarnúmerið eða skannar strikamerkið úr símanum og færð prentaðan límmiða á pakkann. Þú getur líka prentað miðann heima, eða farið með pakkann á pósthús þar sem miðinn er prentaður þér að kostnaðarlausu.
- Inneignarkóðinn berst þér í tölvupósti um leið og Pósturinn tekur við pakkanum. Endurgreiðsla fer fram þegar varan er komin til okkar.