fbpx

Vörumerki: Rosendahl

Danska hönnunarfyrirtækið Rosendahl var stofnað af Erik Rosendahl árið 1984. Síðan fyrirtækið var stofnað hefur það stækkað dag frá degi og er Rosendahl einn sterkasti danski framleiðandinn í smávörum á Norðurlöndunum í dag. Vinsælasta línan frá Rosendahl heitir Grand Cru og var hönnuð 1993 þegar Erik Bagger, einn af þekktustu hönnuðum Rosendahl, hannaði stálvíntappann fyrir línuna. Erik Bagger, sem er gullsmiður, hefur hannað ýmislegt í Grand Cru línunni sem hefur hlotið miklar vinsældir eins og: vatns- og vínkarflan, olíukaraflan, vatnsglös, vínglös og margt fleira.

Skoða körfu “Rosendahl Grand cru olíu/edik karafla” hefur verið bætt í vörukörfuna þína.

Við notum kökur til að bæta síðuna okkar. Geymdar eru kökur með heimsóknartölfræði sem eingöngu eru notaðar af Motivo.