Vel valið fyrir þig, heimilið og þá sem þér þykir vænt um 🤎
Meimeij er ítalskt tískumerki með nútímaleg snið og smáatriði sem gefa flíkunum karakter. Í úrvalinu hjá Motivo finnur þú meðal annars kjóla, skyrtur, peysur, buxur og pils, þar sem ólíkar áferðir, plíseringar og skemmtilegar samsetningar fá að njóta sín.
Hvort sem þú leitar að einni sérstakri flík eða dressi fyrir tilefni hjálpum við þér að finna þína samsetningu. Skoðaðu Meimeij í netversluninni eða kíktu til okkar að Brúarstræti 3 á Selfossi í mátun og persónulega ráðgjöf.