Rilo maxi blómavasi Kremaður
17.990 kr.
Uppselt
Lýsing
Rilo er munnblásinn glervasi með formfagurri og áberandi hönnun sem fangar birtu og skapar fallegt jafnvægi í rýminu. Mjúkar, snúnar línur og hlýir tónar gefa vasanum lífrænt og róandi yfirbragð sem setur stílhreinan svip á heimilið.
Stærðin gerir hann einnig fullkominn sem gólfvasa – kemur vel út einn og sér eða með þurkuðum greinum og blómum.
Hönnunarvasi sem sameinar fagurfræði og nærveru – fullkominn fyrir þá sem vilja innrétta með karakter og leggja áherslu á smáatriðin sem gera gæfumuninn.
Stærð: Þvermál 26,5 cm, hæð 40 cm.
Nánar
| Litur |
Kremað |
|---|---|
| Vörumerki |
Um vörumerkið
Sinnerup er danskt fjölskyldufyrirtæki með yfir 50 ára sögu í hönnun, gæðum og lífsstíl. Fyrsta verslunin var opnuð af Poul Sinnerup í Holstebro árið 1971, og frá þeim degi hefur markmiðið verið skýrt – að skapa innblástur og gleði í kringum heimilið og daglegt líf.
Í dag er Sinnerup eitt þekktasta lífsstílsmerki Dana og sameinar tímalausa norræna hönnun, vandaða framleiðslu og hlýtt viðmót. Vöruframboðið spannar allt frá húsgögnum og heimilisvörum til tísku og gjafavara – þar sem áherslan er á falleg smáatriði, notagildi og góða stemningu.
Eigin vörulínur fyrirtækisins, Furniture by Sinnerup og Sinnerup Design, eru hannaðar af dönskum hönnuðum í Silkeborg og endurspegla hina einstöku norrænu stílsýn: einfaldleika, hlýju og náttúrulegt flæði.
Sinnerup trúir því að innblástur byrji með fólki – og að heimilið eigi að vera staður þar sem hönnun, þægindi og sjarmi mætast á fallegan hátt.
