Vel valið fyrir þig, heimilið og þá sem þér þykir vænt um 🤎
Lýsing
Pio er vasi úr steinleir sem sameinar náttúrulegt yfirbragð og stílhreina hönnun. Formið er mjúkt og hlýlegt – fullkomið fyrir blómaskreytingar eða greinar sem setja persónulegan svip á heimilið.
Vasinn er fáanlegur í náttúrulegum tónum sem gefa rýminu rólegt og fágað yfirbragð, hvort sem hann er notaður einn og sér eða með einfaldri skreytingu.
Stærð: Þvermál 22 cm, hæð 24 cm
Efni: Steinleir
Nánar
| Litur | Hvítt/grátt |
|---|---|
| Vörumerki | Sinnerup |
Um vörumerkið
Sinnerup er danskt lífsstílsmerki með fallega hluti sem gefa heimilinu persónulegan svip. Hjá Motivo veljum við meðal annars glös, bakka, kertastjaka, lampa og aðrar gjafa- og heimilisvörur frá Sinnerup, með áherslu á hlýja stemningu og smáatriði sem gleðja.
Sinnerup fæst aðeins hjá Motivo á Íslandi. Hér getur þú fundið gjöf fyrir heimilið, einhvern sem þér þykir vænt um eða sjálfa þig. Skoðaðu það sem er fáanlegt í netversluninni eða kíktu til okkar að Brúarstræti 3 á Selfossi. Við hjálpum þér að velja og raða saman.
