Owala Freesip stál vatnsbrúsi Down to Earth 710 ml.

5.995 kr.

Uppselt

Vörunúmer: OWA-C07736A4 Flokkur: Merkimiðar: , , ,
Lýsing

Owala FreeSip® hefur notið mikilla vinsælda um allan heim – og það er ekki að ástæðulausu. Hér sameinast snjöll hönnun og einföld notkun þar sem þú getur valið hvernig þú drekkur: beint úr innbyggða rörinu eða úr víðu opinu þegar þú hallar brúsanum. Lokið opnast með einum takka og lokast jafn auðveldlega. Hönnunin er þétt og örugg og kemur í veg fyrir allan leka.

Brúsinn er úr hágæða ryðfríu stáli með þriggja laga einangrun sem heldur drykkjum ísköldum í margar klukkustundir. Þægilegt handfang gerir hann praktískan í hversdagsleikann – hvort sem er í vinnu, ræktina eða á ferðalagi. FreeSip® var valinn ein af „Bestu uppfinningum ársins 2023“ hjá TIME.

Helstu eiginleikar:
– Tvær leiðir til að drekka: innbyggt rör eða vítt op
– Þétt og örugg hönnun sem kemur í veg fyrir leka
– Opnast með einum takka og lokast með einföldum þrýstingi
– Ryðfrítt stál í hágæðum með 3 laga einangrun
– Heldur drykkjum köldum í margar klukkustundir
– BPA-, blý- og þalatlaust
– Þægilegt handfang
– Lok má setja í uppþvottavél; mælt er með að handþvo brúsa
– Rúmmál: 710 ml
– Stærð: 27 cm á hæð · 7,9 cm í þvermál

Nánar
Vörumerki
Um vörumerkið
Owala er bandarískt hönunarmerki sem hefur nú farið sigurför um heiminn með snjöllum, notendavænum og litríkum vatnsbrúsum sem gera daglegt líf einfaldara. Merkið varð sérstaklega þekkt fyrir FreeSip® hönnunina – einstakt lok þar sem þú getur annaðhvort drukkið úr innbyggðu rörinu eða úr víðu opinu eftir því hvað hentar hverju sinni. Frískandi nálgun Öwalu á hönnun og litaval hefur skapað alþjóðlega stemningu á samfélagsmiðlum, og brúsarnir hafa hlotið viðurkenningar fyrir bæði gæði og frumleika, meðal annars frá TIME sem valdi FreeSip® sem eina af bestu uppfinningum ársins 2023.