Owala Freesip stál vatnsbrúsi Candy Coated 945 ml.

6.995 kr.

Uppselt

Vörunúmer: OWA-C06725A4 Flokkur: Merkimiðar: , ,
Lýsing

Owala FreeSip® er hannaður til að fylgja þér alla leið í gegnum daginn – hvort sem það er í vinnu, ræktina eða lengri göngutúra. Hér sameinast snjöll hönnun og einföld notkun: þú getur drukkið beint úr innbyggða rörinu eða úr víðu opinu þegar þú hallar brúsanum. Lokið opnast með einum takka, lokast jafn auðveldlega og hönnunin er þétt og örugg og kemur í veg fyrir allan leka.

Brúsinn er úr hágæða ryðfríu stáli með einangrun sem heldur drykkjum ísköldum í margar klukkustundir. Þægilegt handfang gerir hann sérlega praktískan í notkun og auðvelt að grípa hann með sér í daginn.

FreeSip® var valinn ein af „Bestu uppfinningum ársins 2023“ hjá TIME.

Helstu eiginleikar:
– Tvær leiðir til að drekka: innbyggt rör eða vítt op
– Þétt og örugg hönnun sem kemur í veg fyrir leka
– Opnast með einum takka og lokast með einföldum þrýstingi
– Ryðfrítt stál í hágæðum með einangrun
– Heldur drykkjum köldum í margar klukkustundir
– BPA-, blý- og þalatlaust
– Þægilegt handfang
– Lok má setja í uppþvottavél; mælt er með að handþvo brúsa
– Rúmmál: 950 ml

Nánar
Vörumerki
Um vörumerkið
Owala er bandarískt hönunarmerki sem hefur nú farið sigurför um heiminn með snjöllum, notendavænum og litríkum vatnsbrúsum sem gera daglegt líf einfaldara. Merkið varð sérstaklega þekkt fyrir FreeSip® hönnunina – einstakt lok þar sem þú getur annaðhvort drukkið úr innbyggðu rörinu eða úr víðu opinu eftir því hvað hentar hverju sinni. Frískandi nálgun Öwalu á hönnun og litaval hefur skapað alþjóðlega stemningu á samfélagsmiðlum, og brúsarnir hafa hlotið viðurkenningar fyrir bæði gæði og frumleika, meðal annars frá TIME sem valdi FreeSip® sem eina af bestu uppfinningum ársins 2023.