N°5 er dökkristaður til að draga fram sætu súkkulaðsins í Arabica baununum, að viðbættum örlitlum karamellukeim. Hentar vel sem bæði espresso og lungo. 100% lífrænt ræktað kaffi. 10 hylki. Styrkur 4/5. Lítill bolli 80ml. Hylkin eru rauð og passa í Nespresso og Sjöstrand kaffivélar.
Grunnhugmyndin á bakvið Sjöstrand er að selja vörur með klassíska hönnun sem stenst tímans tönn. Kaffihylkin frá Sjöstrand eru fyllt með besta mögulega kaffi sem baunabeltið hefur uppá að bjóða – 100% lífrænt ræktað. Hylkin eru framleidd úr sterkju og plöntutrefjum og má því henda með lífrænum úrgangi. Að sjálfsögðu er ekki skaðlegt að henda þeim með heimilssorpi þar sem þau brotna hratt niður. Þá er Sjöstrand kaffið Fairtrade vottað.
Sjöstrand er sænskt fyrirtæki, stofnað í Skerjagarðinum fyrir utan Stokkhólm. Innblásturinn kemur frá náttúrunni, nálægðinni við stórborgina og ástríðunni fyrir kaffi.