Vel valið fyrir þig, heimilið og þá sem þér þykir vænt um 🤎
Lýsing
Taktu matargerðina þína á næsta stig með þessari saltblöndu frá Nicolas Vahé. Saltið hefur bragð af hvítlauk og timjan og er fullkomið fyrir daglega matreiðslu. Gefðu einföldum pastarétt nýtt twist eða notaðu það á dýrindis lambakjöts- eða kjúklingarétti. Kvörnin gefur þér fínmalað krydd.
Stærð: 300 g.
Innihald: salt 90%, garlic 8%, thyme, thyme essential oil.
*Athugið að ekki er hægt að skila eða skipta matvöru nema um gallaða vöru sé að ræða.
Nánar
| Vörulína | Eldhúsvörur, Krydd |
|---|---|
| Vörumerki | Nicolas Vahé |
| Stærð | 300 g |
Um vörumerkið
Nicolas Vahé býður upp á sælkeravörur sem gefa þér hugmyndir í eldhúsinu og setja bragð á hversdagsmatinn. Hjá Motivo finnur þú meðal annars salt, pipar, olíur, pestó, ólífur og sætt góðgæti – bæði til að njóta sjálf og gefa öðrum.
Lítil sælkeragjöf getur verið falleg leið til að þakka fyrir sig eða gleðja þann sem hefur gaman af matargerð. Skoðaðu úrvalið á netinu eða kíktu til okkar að Brúarstræti 3 á Selfossi. Við hjálpum þér gjarnan að finna vörur sem fara vel saman.
