Kay Bojesen söngfugl Ravn svartur

12.990 kr.

Aðeins eitt eintak eftir ‼️

Vörunúmer: EP257 Flokkur: Merkimiði:
Lýsing

Söngfuglinn Ravn, eða hrafninn, er stílhreinn og fallega svartur með sterka og fágaða nærveru. Hann passar einstaklega vel með öðrum fuglum úr Kay Bojesen fjölskyldunni og skapar fallega heild á heimilinu.

Einföld hönnun og skýrar línur gefa fuglinum karakter og rólegt yfirbragð sem nýtur sín bæði einn og með öðrum.

Stærð: 16 x 7,5 x 15 cm

Nánar
LiturSvart
Vörumerki
Um vörumerkið
Kay Bojesen (1886-1958) byrjaði feril sinn sem silfursmiður hjá Georg Jensen þar sem hann vann bæði í París og í Þýskalandi. Áhugi hans á barnaleikföngum leiddi hann fljótt í aðra átt en nokkrum árum síðar var hann byrjaður að hanna skemmtilegar tréfígúrur sem fljótt urðu mjög vinsælar. Hugmyndin á bakvið fígúrurnar var að þær væru einfaldar svo að ímyndunarafl barnsinns fengi að njóta sín. Í dag er hann einn af þekktustu hönnuðum Danmerkur og þá einkum fyrir trédýrin sín. Árið 1990 keypti Rosendahl framleiðsluréttinn á vörunum og í dag fá þær að njóta sín á heimilum fólks um allan heim.