Kay Bojesen söngfugl Ernst grár og hvítur

12.990 kr.

Aðeins eitt eintak eftir ‼️

Vörunúmer: EP250 Flokkur: Merkimiði:
Lýsing

Söngfuglinn Ernst er hlýleg og karakterrík viðbót við Kay Bojesen safnið, innblásinn af föður hans, Ernst, sem var þekktur fyrir sköpunargleði og lífsgleði.

Einföld og mjúk form gefa fuglinum rólegt en persónulegt yfirbragð sem fellur fallega inn á heimilið – hvort sem hann stendur einn eða sem hluti af safni. Falleg gjafahugmynd sem ber með sér sögu og tilfinningu.

Stærð: 16 x 7,5 x 15 cm

Nánar
LiturGrátt
Vörumerki
Um vörumerkið
Kay Bojesen (1886-1958) byrjaði feril sinn sem silfursmiður hjá Georg Jensen þar sem hann vann bæði í París og í Þýskalandi. Áhugi hans á barnaleikföngum leiddi hann fljótt í aðra átt en nokkrum árum síðar var hann byrjaður að hanna skemmtilegar tréfígúrur sem fljótt urðu mjög vinsælar. Hugmyndin á bakvið fígúrurnar var að þær væru einfaldar svo að ímyndunarafl barnsinns fengi að njóta sín. Í dag er hann einn af þekktustu hönnuðum Danmerkur og þá einkum fyrir trédýrin sín. Árið 1990 keypti Rosendahl framleiðsluréttinn á vörunum og í dag fá þær að njóta sín á heimilum fólks um allan heim.