Allt á einum stað – fyrir heimilið, þig og þá sem þú elskar!
Kay Bojesen söngfugl Ernst grár og hvítur
12.990 kr.
Kay Bojesen Api lítill Eik
20.990 kr.
Kay Bojesen Líf og Lukka Ljósbleikt
11.490 kr.
Uppselt
Lýsing
Fallegt fuglapar sem fagnar lífsins stóru og litlu augnablikum og táknar einstök tengsl foreldra og barna. Liv & Lykke fuglarnir frá Kay Bojesen bera með sér hlýju, gleði og kærleika, og minna á allt það fallega í hversdagsleikanum.
Parið samanstendur af einum stórum og einum litlum fugli í hinni klassísku Kay Bojesen hönnun. Hægt er að stilla þeim upp saman eða hvorum fyrir sig, allt eftir því hvernig þú vilt túlka þína eigin sögu og það skeið sem þú ert á í lífinu.
Unnir úr FSC®-vottuðum beyki.
Nánar
| Litur | Ljósbleikt |
|---|---|
| Vörumerki | Kay Bojesen |
Um vörumerkið
Kay Bojesen (1886-1958) byrjaði feril sinn sem silfursmiður hjá Georg Jensen þar sem hann vann bæði í París og í Þýskalandi. Áhugi hans á barnaleikföngum leiddi hann fljótt í aðra átt en nokkrum árum síðar var hann byrjaður að hanna skemmtilegar tréfígúrur sem fljótt urðu mjög vinsælar. Hugmyndin á bakvið fígúrurnar var að þær væru einfaldar svo að ímyndunarafl barnsinns fengi að njóta sín. Í dag er hann einn af þekktustu hönnuðum Danmerkur og þá einkum fyrir trédýrin sín. Árið 1990 keypti Rosendahl framleiðsluréttinn á vörunum og í dag fá þær að njóta sín á heimilum fólks um allan heim.
