Iittala Kastehelmi glös 2stk linen

5.290 kr.

Aðeins eitt eintak eftir ‼️

Frí skil og skipti í 14 dagaNánar
Vörunúmer: AO1254 Flokkur: Merkimiðar: , ,
Lýsing

Kastehelmi glösin frá Iittala eru 30 cl. í þæginlegri stærð og henta vel undir ýmsa drykki. Glösin fara einstaklega vel saman með matardiskum úr sömu línu og skemmtilegt er að blanda glösunum saman í mismunandi litum. Orðið Kastehelmi þýðir í raun daggardropi sem á vel við fallegu glerperlurnar sem eru svo einkennandi fyrir línuna. Linen er litur ársins 2020 hjá Iittala.

Iittala er finnskt hönnunarfyrirtæki sem hannar og framleiðir skrautmuni og borðbúnað fyrir heimili. Saga Iittala hófst árið 1881, en til að byrja með framleiddi fyrirtækið margskonar glervörur. Í byrjun 20. aldar færði fyrirtækið út kvíarnar með því að hefja framleiðslu á leirvörum og síðar á stálvörum. Hugmyndafræði Iittala er mótuð að miklu leiti eftir hönnuðinum Kaj Franck sem sagði að allir hlutir ættu að vera nytsamlegir, endingargóðir og hagnýtir.

Nánar
Stærð
Vörulína
Vörumerki
LiturLinen
Um vörumerkið
Iittala er finnskt hönnunarmerki með langa sögu í gler- og borðbúnaði. Hjá Motivo finnur þú meðal annars glös, skálar, diska og kertastjaka úr línum á borð við Kastehelmi, Ultima Thule og Essence – fallega hluti sem hægt er að njóta bæði dagsdaglega og þegar lagt er á borð fyrir sérstakt tilefni. Iittala er góður kostur þegar þú leitar að gjöf fyrir heimilið eða vilt bæta við það sem þú átt fyrir. Skoðaðu úrvalið í netversluninni eða kíktu að Brúarstræti 3 á Selfossi. Við hjálpum þér að finna rétta hlutinn.