Ilmsprey – hvít jasmína

2.190 kr.

Á lager

Vörunúmer: SIN-022478-BE Flokkur: Merkimiðar: , ,
Lýsing

Ilmsprey frá Sinnerup með mildum og fáguðum ilm af hvítum jasmin. White Jasmine sameinar létta blómatóna og mjúkan sætleika sem skapar ferskt og notalegt andrúmsloft á heimilinu.

Hentar vel í stofuna, svefnherbergið, forstofuna eða önnur rými sem kalla á léttan og frískandi ilm. Með örfáum úðum er auðvelt að fríska upp á rýmið og skapa notalega stemningu.

Léttur og blómkenndur ilmur

Fersk og notaleg stemning

Auðvelt að fríska upp á rýmið

Hentar vel víða um heimilið

Ilmur: White Jasmine

Innihald: 100 ml

Ferskar upp á rýmið á augabragði.

Nánar
Vörumerki
Um vörumerkið
Sinnerup er danskt fjölskyldufyrirtæki með yfir 50 ára sögu í hönnun, gæðum og lífsstíl. Fyrsta verslunin var opnuð af Poul Sinnerup í Holstebro árið 1971, og frá þeim degi hefur markmiðið verið skýrt – að skapa innblástur og gleði í kringum heimilið og daglegt líf. Í dag er Sinnerup eitt þekktasta lífsstílsmerki Dana og sameinar tímalausa norræna hönnun, vandaða framleiðslu og hlýtt viðmót. Vöruframboðið spannar allt frá húsgögnum og heimilisvörum til tísku og gjafavara – þar sem áherslan er á falleg smáatriði, notagildi og góða stemningu. Eigin vörulínur fyrirtækisins, Furniture by Sinnerup og Sinnerup Design, eru hannaðar af dönskum hönnuðum í Silkeborg og endurspegla hina einstöku norrænu stílsýn: einfaldleika, hlýju og náttúrulegt flæði. Sinnerup trúir því að innblástur byrji með fólki – og að heimilið eigi að vera staður þar sem hönnun, þægindi og sjarmi mætast á fallegan hátt.