Hoka Clifton 10 Svartir KK

31.990 kr.

Stærðartafla Hoka

Athugið að Hoka skórnir eru frekar litlir í stærðum og. því er mælt með að taka 1/2 - 1 númeri stærra en maður tekur vanalega í skóstærð

Vörunúmer: HK-1162030-BBLC/Y Flokkur: Merkimiðar: , , ,
Lýsing

Clifton 10 er nýjasta útgáfan af einum vinsælasta hlaupskó Hoka. Í yfir tíu ár hefur Clifton verið traustur félagi í daglegum æfingum – léttur, mjúkur og þægilegur með góða dempun.

Í þessari útgáfu hefur sniðið verið betrumbætt og hæl–tá munurinn er 8 mm. Skórinn heldur þeirri léttu og mjúku tilfinningu sem Clifton er þekktur fyrir, en situr nú enn betur á fæti. Yfirbyggingin er úr léttu efni sem andar vel og reimakerfið heldur tungunni betur á sínum stað.

Clifton 10 hentar jafnt í hlaup og göngu og er einnig vinsæll sem þægindaskór í vinnu og daglegri notkun.

Helstu eiginleikar:
– Létt og vel dempuð miðsóla sem styður vel við hvert skref
– MetaRocker™ sóli sem styður við eðlilegt skref
– Góður hælstuðningur
– Létt og vel loftræst yfirbygging
– Mjúkur innleggssóli
– Slitsterkur undirsóli með góðu gripi
– Endurskinsatriði

Hentar fyrir:
– Götuhlaup
– Göngu
– Daglega notkun

Drop: 8 mm
Þyngd: u.þ.b. 227 g (konur) / 277 g (karlar)

Nánar
Stærð42, 42 2/3, 43 1/3, 44, 44 2/3, 45 1/3
LiturSvart
Vörumerki