Fallegar servíettur þriggja laga klórfríar frá Heklu Íslandi – 20 stk í pakka. Ljósmynd af mosa prýðir servétturnar tekin í Hljóðaklettum af ljósmyndaranum Ragga Óla.
Hekla Íslandi framleiðir ýmsar fallegar vörur fyrir heimilið en markmið fyrirtækisins er að hanna og framleiða gæðavörur með séríslenskum/norrænum áhrifum. Hekla Björk Guðmundsdóttir hönnuður og listakona er alin upp á Laugalandi Holtum í Rangárvallasýslu.
Hún og sækir allan sinn innblástur í íslenska náttúru og hefðir. Lóan, kindin og hesturinn hafa einnig spilað stórt hlutverk í sköpun Heklu ásamt villtri flóru Íslands.