Fiskastykki Búrhvalur Dökkblátt

2.990 kr.

Á lager

Vörunúmer: VA137 Flokkur: Merkimiðar: ,
Lýsing

Gæða viskastykki með fiskamynstri sem kallast því skemmtilega nafni „Fiskastykki“. Gælunafnið „spermur“ er dregið af enska heitinu. Áður var talið að höfuð hvalsins, sem er um þriðjungur af stærð dýrsins, væri fullt af sæði en efnið er vaxkennt og ekki fullrannsakað hvaða tilgangi það þjónar. Spermurinn er stærstur tannhvala og getur orðið 20 metra langur. Hann var friðaður 1986.

Efni: 100% Bómull

Stærð: 50 x 70 cm

Nánar
Litur

Dökkblátt

Stærð

Vörulína

,

,

Vörumerki

Um vörumerkið
Hönnuður fiskastykkjanna, :Orn Smári dregur innblástur sinn úr hafinu. Ungur var hann sendur vestur á firði þar sem eðlileg afþreying fyrir unga drengi var að sitja saman á bryggjusporðinum og dorga. Að fara með frændum á smáum bát með utanborðsmótor að vitja grásleppuneta var hin mesta upplifun. Fisksalarnir og sjómennirnir Gísli Ben, pabbi hönnuðarins og Benjamín Jónsson, afi hans hafa haft meiri áhrif en þá grunaði þó svo að :Orn Smári nálgist hráefnið á annan hátt en þeir. Fisksölum fylgdu óteljandi ferðir suður með sjó að sækja ferskan fisk ýmist seint að kvöldi eða eldsnemma að morgni. Uppskipun var með einföldum hætti, beint á pallbílinn, Chevrolet 1952 árgerð og segl strengt yfir. :Orn Smári gekk í eigin reynslubrunn af síldar- vinnu í Kópavogi um miðjan 7. áratuginn þegar hann hannaði sitt fyrsta frímerki áratugum síðar. Síst átti hann von á að fisksala myndi liggja fyrir honum.