Allt á einum stað – fyrir heimilið, þig og þá sem þú elskar!
Elí2107 spíral hringur Gull
5.990 kr.
Vörunúmer:
MAR328Y
Flokkur: Skartgripir
Merkimiðar: Hringir, Mitt Motivo, Skartgripir, Fermingargjafir
Lýsing
Elí Spíral hringurinn frá 1104 by MAR er hluti af klassísku og tímalausu Elí línunni.
Glæsileg hönnun með lífrænu formi og yfirborði sem er viljandi óslétt – sem gefur hringnum hlýjan karakter og einstakt yfirbragð.
Fullkominn í daglega notkun, hvort sem hann er borinn einn og sér eða lagður saman með öðrum hringjum.
Efni: Ryðfrítt stál & 18k gullhúðun. Skartgripirnir frá 1104 by MAR eru nikkellausir.
Um vörumerkið
1104 varð til í desember 2020 til að heiðra föður Dagmars eiganda 1104 by MAR, Gunnar Mýrdal heitinn, einn af færari hjartaskurðlæknum á landinu, en hann helgaði lífi sinu að bjarga öðrum. Afmælisdagur hans var 11. apríl og hefur því 1104 mikla þýðingu fyrir okkur.
Við leggjum hjarta okkar og sál í vörurnar okkar og vonum að viðskiptavinir okkar geti fundið það þegar þeir ganga með skartið okkar.
