Vel valið fyrir þig, heimilið og þá sem þér þykir vænt um 🤎
Lýsing
Töff jakki úr mjúku gervileðri með víðu sniði og eilítið yfirdrifnum öxlum. Jakkinn er í mótorhjólastíl með breiðum kraga, rennilás að framan og smellum. Vasar í hliðum og teygja í faldinum gefa honum smart og þægilegt snið.
Flottur yfir kjóla og pils en einnig fullkominn við gallabuxur eða sparilegri buxur.
Efni: 45% pólýúretan, 50% viskós, 5% pólýester. Fóður: 100% pólýester.
Nánar
| Stærð | 38, 40, 42, 44 |
|---|---|
| Litur | Dökkbrúnn |
| Vörumerki | ELEH |
Um vörumerkið
ELEH er ítalskt tískumerki fyrir konur sem vilja smart flíkur með persónulegum svip. Nútímaleg snið, ólíkar áferðir og óvænt smáatriði gefa fatnaðinum karakter, hvort sem þú velur eina flík til að lyfta hversdagsdressinu eða setur saman heildarútlit.
Hjá Motivo finnur þú sérvalinn dömufatnað frá ELEH á Íslandi, meðal annars skyrtur, blússur, peysur, buxur, jakka og frakka. Skoðaðu úrvalið á netinu eða kíktu í mátun að Brúarstræti 3 á Selfossi. Við hjálpum þér að finna stærð og snið sem henta þér.
