Vel valið fyrir þig, heimilið og þá sem þér þykir vænt um 🤎
Lýsing
Smart og síðari jakki með beinu, víðu sniði. Jakkinn er með klassískum kraga, einni tölu að framan, brjóstvasa og vösum með loki. Hráir saumar við axlir, ermar, vasa og bakið gefa jakkanum töff og óvenjulegt yfirbragð.
Flottur með buxunum úr sama efni en einnig smart stakur við gallabuxur eða aðrar buxur.
Efni: 76% pólýester, 16% viskós, 2% asetat, 2% lyocell, 2% ull, 2% teygja.
Nánar
| Stærð | 38, 40, 42 |
|---|---|
| Litur | Dökkbrúnn |
| Vörumerki | ELEH |
Um vörumerkið
ELEH er ítalskt tískumerki fyrir konur sem vilja smart flíkur með persónulegum svip. Nútímaleg snið, ólíkar áferðir og óvænt smáatriði gefa fatnaðinum karakter, hvort sem þú velur eina flík til að lyfta hversdagsdressinu eða setur saman heildarútlit.
Hjá Motivo finnur þú sérvalinn dömufatnað frá ELEH á Íslandi, meðal annars skyrtur, blússur, peysur, buxur, jakka og frakka. Skoðaðu úrvalið á netinu eða kíktu í mátun að Brúarstræti 3 á Selfossi. Við hjálpum þér að finna stærð og snið sem henta þér.
