Allt á einum stað – fyrir heimilið, þig og þá sem þú elskar!
Drykkjakanna með krana – 7,5 L
9.990 kr.
Uppselt
Lýsing
Drykkjarkanna með krana frá Sinnerup sem sameinar fallega hönnun og notagildi. Kannan er úr riffluðu gleri með loki og standi úr akasíuviði sem gefur henni hlýlegt og náttúrulegt yfirbragð. Tilvalin fyrir vatn, safa, límonaði eða aðra kalda drykki þegar taka á vel á móti gestum.
Falleg viðbót á borðið fyrir brunch, veislur eða notalegar samverustundir.
Efni: Gler, akasíuviður og PP
Rúmmál: 7,5 L
Stærð: H 41,5 cm / B 22,5 cm / D 17,5 cm
Umhirða: Glerílátið skal þvo í höndunum. Lok og stand úr viði skulu þurrkuð með rökum klút og ekki lögð í bleyti. Ekki má fara í uppþvottavél.
Nánar
| Vörumerki | Sinnerup |
|---|
Um vörumerkið
Sinnerup er danskt fjölskyldufyrirtæki með yfir 50 ára sögu í hönnun, gæðum og lífsstíl. Fyrsta verslunin var opnuð af Poul Sinnerup í Holstebro árið 1971, og frá þeim degi hefur markmiðið verið skýrt – að skapa innblástur og gleði í kringum heimilið og daglegt líf.
Í dag er Sinnerup eitt þekktasta lífsstílsmerki Dana og sameinar tímalausa norræna hönnun, vandaða framleiðslu og hlýtt viðmót. Vöruframboðið spannar allt frá húsgögnum og heimilisvörum til tísku og gjafavara – þar sem áherslan er á falleg smáatriði, notagildi og góða stemningu.
Eigin vörulínur fyrirtækisins, Furniture by Sinnerup og Sinnerup Design, eru hannaðar af dönskum hönnuðum í Silkeborg og endurspegla hina einstöku norrænu stílsýn: einfaldleika, hlýju og náttúrulegt flæði.
Sinnerup trúir því að innblástur byrji með fólki – og að heimilið eigi að vera staður þar sem hönnun, þægindi og sjarmi mætast á fallegan hátt.
