Dolomite 54 Low Fg GTX Svartir KVK

34.990 kr.

Vörunúmer: DOL001Y Flokkur: Merkimiði:
Lýsing

54 Low FG GTX eru léttir, lágir og þægilegir gönguskór, gerðir úr vönduðu olíubornu nubuckleðri með GORE-TEX vatnsheldu fóðri sem heldur fótunum þurrum í hvers kyns aðstæðum. Vibram® sóli með dempun veitir mýkt og góðan stuðning við daglega notkun.

Þessir skór sameina retro yfirbragð og nútímalega ítalska hönnun á smekklegan hátt – fullkomnir bæði í borgargöngu og ferðalög, eða einfaldlega til að njóta þæginda dags daglega. Skór sem sameina útlit og notagildi.

Aukasett af reimum fylgir með hverju pari.

Efnisupplýsingar:
Efri hluti: Olíuborið nubuckleður og vulkaniserað gúmmí
Fóður: GORE-TEX® himna og náttúrulegt kornaleður
Innleggsóli: Texon styrking
Miðsóli: Formsniðin EVA (microporous ethylene-vinyl acetate)
Ytri sóli: Ice Trek 2 gúmmíblanda
Fótbeð: EVA og netefni (mesh)

Um vörumerkið
Dolomite er ítalskt hágæða merki sem hefur verið að framleiða skó síðan 1897. Vörur þeirra hafa verið notaðar af ferðalöngum og útivistargörpum um allan heim. Dolomite skórnir eru þekktir fyrir flott útlit, góða endingu og virkni. Dolomite gönguskór eru þess virði að skoða fyrir alla sem njóta þess að vera út í náttúrunni og upplifa það sem landið okkar hefur uppá að bjóða. Ítölsk hönnun sem virkar vel við íslenskar aðstæður. Dolomite skórnir bjóða uppá gæði, þægindi, stuðning, virkni, flott útlit og síðast en ekki síst gott orðspor. Þú munt ekki sjá eftir því að bæta Dolomite gönguskónum við í útivistar búnaðinn þinn.