Allt á einum stað – fyrir heimilið, þig og þá sem þú elskar!
Dolomite 54 Low Fg Evo GTX Málmgráir
0 kr. – 34.990 kr.Price range: 0 kr. through 34.990 kr.
54 Low FG Evo GTX eru léttir, lágir og þægilegir gönguskór, gerðir úr vönduðu olíubornu nubuckleðri með GORE-TEX vatnsheldu fóðri sem heldur fótunum þurrum í hvers kyns aðstæðum. Vibram® sóli með dempun veitir mýkt og góðan stuðning við daglega notkun.
Þessir skór sameina retro yfirbragð og nútímalega ítalska hönnun á smekklegan hátt – fullkomnir bæði í borgargöngu og ferðalög, eða einfaldlega til að njóta þæginda dags daglega. Skór sem sameina útlit og notagildi.
Aukasett af reimum fylgir með hverju pari.
Efnisupplýsingar:
Efri hluti: Umhverfisvottað olíuborið nubuckleður og vulkaniserað gúmmí
Fóður: GORE-TEX® vatnsheld himna og umhverfisvottað kornaleður (full grain)
Innleggsóli: Korkur
Miðsóli: Formsniðin og endurunnin EVA-miðsóla (microporous ethylene-vinyl acetate)
Ytri sóli: Ice Trek 2 gúmmíblanda
Fótbeð: Endurunnin EVA og endurunnið mesh
| Stærð | 36 2/3, 37 1/2, 38 2/3, 39 1/2, 40 2/3, 38, 40, 41 1/2, 42 |
|---|
