Vel valið fyrir þig, heimilið og þá sem þér þykir vænt um 🤎
Lýsing
Dizzy vasinn er hluti af glerlínu Sinnerup og einkennist af mjúku, bylgjuðu formi sem gefur honum lífrænan og fágaðan svip.
Form og stærð gera vasann jafn fallegan sem skraut einn og sér eða með litlum búnti af ferskum eða þurrkuðum blómum.
Stílhreinn og hlýr hönnunarvasi sem hentar í hvaða rými sem er – falleg gjafahugmynd fyrir einhvern sem þér þykir vænt um.
Stærð: Þvermál 15 cm, hæð 20 cm
Efni: Gler
Nánar
| Litur | Brúnn |
|---|---|
| Vörumerki | Sinnerup |
Um vörumerkið
Sinnerup er danskt lífsstílsmerki með fallega hluti sem gefa heimilinu persónulegan svip. Hjá Motivo veljum við meðal annars glös, bakka, kertastjaka, lampa og aðrar gjafa- og heimilisvörur frá Sinnerup, með áherslu á hlýja stemningu og smáatriði sem gleðja.
Sinnerup fæst aðeins hjá Motivo á Íslandi. Hér getur þú fundið gjöf fyrir heimilið, einhvern sem þér þykir vænt um eða sjálfa þig. Skoðaðu það sem er fáanlegt í netversluninni eða kíktu til okkar að Brúarstræti 3 á Selfossi. Við hjálpum þér að velja og raða saman.
