Vel valið fyrir þig, heimilið og þá sem þér þykir vænt um 🤎
Lýsing
Cozy LED borðlampi frá Sinnerup sameinar fallega hönnun og sveigjanlega notkun. Lampinn er þráðlaus, með þremur birtustillingum og stillanlegri hæð, þannig að auðvelt er að aðlaga hann að hverju rými og tilefni.
Hægt er að hlaða lampann bæði með USB-C og sólarorku, sem gerir hann einstaklega hentugan bæði inni og úti. Hann þolir sól, vind og regn og hentar því jafnt á svalir, pallinn, við rúmið eða á stofuborðið.
Falleg lýsing þar sem og þegar þú þarft á henni að halda.
Hleðsla: USB-C og sólarorka
Notkun: Innandyra og utandyra
Birtustillingar: 3
Hæð: Stillanleg í 2 hæðir
Nánar
| Vörumerki | Sinnerup |
|---|
Um vörumerkið
Sinnerup er danskt lífsstílsmerki með fallega hluti sem gefa heimilinu persónulegan svip. Hjá Motivo veljum við meðal annars glös, bakka, kertastjaka, lampa og aðrar gjafa- og heimilisvörur frá Sinnerup, með áherslu á hlýja stemningu og smáatriði sem gleðja.
Sinnerup fæst aðeins hjá Motivo á Íslandi. Hér getur þú fundið gjöf fyrir heimilið, einhvern sem þér þykir vænt um eða sjálfa þig. Skoðaðu það sem er fáanlegt í netversluninni eða kíktu til okkar að Brúarstræti 3 á Selfossi. Við hjálpum þér að velja og raða saman.
