Carino LED lampi Beige

12.990 kr.

Á lager

Frí skil og skipti í 14 dagaNánar
Vörunúmer: SIN-021851-BE Flokkur: Merkimiðar: ,
Lýsing

Glæsilegur og fjölhæfur LED lampi sem hentar jafnt inni sem úti. Carino sameinar stílhreina hönnun og notagildi og skapar hlýlega stemningu við matarborðið, á pallinum, svölunum eða í stofunni. Lampinn er hlaðinn með USB og auðvelt er að færa hann á milli staða án þess að þurfa að hafa áhyggjur af snúrum.

Með IP44 vottun er lampinn skvettuvörn og hentar vel til notkunar utandyra. Hann býður upp á langan lýsingartíma og er því fullkominn fyrir notalegar kvöldstundir bæði innan- og utandyra.

• LED lampi fyrir innan- og utandyra notkun
• Hlaðinn með USB
• IP44 skvettuvörn
• Stílhrein og tímalaus hönnun
• Fæst í fleiri litum
• Auðvelt að færa á milli staða

Stærð: Ø13 x H28 cm

Efni: Stál

Upplýsingar:
• Hleðslutími: um 4 klst.
• Lýsingartími við fulla hleðslu: allt að 5 klst. á hámarks birtustyrk eða allt að 72 klst. á lægsta birtustigi
• IP44 vottun

Umhirða: Þurrkið af með mjúkum, þurrum klút. Forðist sterk hreinsiefni sem geta skemmt yfirborðið.

Nánar
Vörumerki
Um vörumerkið
Sinnerup er danskt lífsstílsmerki með fallega hluti sem gefa heimilinu persónulegan svip. Hjá Motivo veljum við meðal annars glös, bakka, kertastjaka, lampa og aðrar gjafa- og heimilisvörur frá Sinnerup, með áherslu á hlýja stemningu og smáatriði sem gleðja. Sinnerup fæst aðeins hjá Motivo á Íslandi. Hér getur þú fundið gjöf fyrir heimilið, einhvern sem þér þykir vænt um eða sjálfa þig. Skoðaðu það sem er fáanlegt í netversluninni eða kíktu til okkar að Brúarstræti 3 á Selfossi. Við hjálpum þér að velja og raða saman.