Avolt Fjöltengi Stál
12.990 kr.
Á lager
Sérútgáfa af þessu fallega fjöltengi. Kubburinn tekur við þremur venjulegum klóm og pláss er fyrir tvö usb-tengi sem auðveldar alla vinnu við eldhúsborðið, þegar sími og tölva geta verið í sambandi á sama tíma. Eins fylgir með þunnur platti með segli, sem þú getur límt á innréttingu, undir eldhúseyjuna eða skrifborðið og smellt kubbnum þar á – og þá auðveldlega tekið niður aftur. Þá er snúran sem er 1.8 m á lengd einnig fallega hönnuð.
100-240V – 50/60 HZ, MAX 300W
Það er sænska hönnunarstofan Avolt sem framleiðir fjöltengið, en fyrirtækið var stofnað með þá sýn að raftæki gætu verið falleg, fagurfræðileg og virkað. Markmið Avolt er að setja ný viðmið fyrir heimili, skrifstofur og almenningsrými. Hugsjón þeirra er mínimalismi, sem sést í lögun fjöltengisins, eins og einfaldur kubbur í laginu.Varan hefur hlotið tvenn verðlaun; Svenska Design Priset og Reddot árið 2019 – þar sem tímalaus hönnun sameinast framleiðslu sem beinist að sjálfbærni og gerir vöruna áberandi.
Litur |
Stál |
---|---|
Stærð | |
Vörulína | |
Vörumerki |