Allt á einum stað – fyrir heimilið, þig og þá sem þú elskar!
Akasíu skurðarbretti
5.290 kr.
Aðeins eitt eintak eftir ‼️
Fallegt ílangt skurðarbretti úr endingargóðum akasíuviði með síldarbeinsmynstri. Brettið hentar bæði til matargerðar og sem framreiðslubretti, til dæmis fyrir osta, tapas eða aðra rétti.
Akasíuviður er náttúrulega slitsterkur og rakavarnandi en jafnframt nægilega mjúkur til að hlífa hnífseggjum. Þar sem viðurinn er náttúrulegt efni er hvert bretti einstakt – æðamynstur og litbrigði geta verið mismunandi frá einu stykki til annars.
Stærð: 55 × 15 × 1,5 cm
Efni: Akasíuviður
Umhirða:
Fyrir fyrstu notkun er gott að bera þunnt lag af matarolíu eða annarri viðurkenndri viðarolíu á yfirborðið með mjúkum klút og láta draga sig inn yfir nótt. Þurrkið svo umfram olíu. Endurtakið meðferðina reglulega til að viðhalda náttúrulegri fegurð og vernd viðarins.
Þvoið með mildri sápu og volgu vatni, ekki leggja í bleyti og ekki setja í uppþvottavél. Geymið þurrt við stofuhita.
| Litur | Brúnt |
|---|---|
| Vörumerki | Sinnerup |
