Allt á einum stað – fyrir heimilið, þig og þá sem þú elskar!
Akasíu lítil bretti 4 stk
5.290 kr.
Á lager
Lýsing
Smurbretti úr akasíuviði frá Sinnerup sem sameina fallega hönnun og notagildi. Brettin eru fjögur saman í setti og henta jafnt fyrir morgunverð, tapas, smárétti eða sem hluti af fallegri borðuppsetningu.
Akasíuviður er endingargott náttúruefni þar sem litbrigði og æðamynstur gera hvert bretti einstakt.
Setur hlýjan og náttúrulegan svip á borðið.
Efni: Akasíuviður
Magn: 4 stk.
Umhirða: Ekki má setja í uppþvottavél eða leggja í bleyti. Þvoið með volgu vatni og þurrkið strax. Til að viðhalda viðnum er gott að bera reglulega á hann matarolíu eða aðra olíu sem hentar fyrir viðarvörur í snertingu við mat.
Nánar
| Vörumerki | Sinnerup |
|---|
Um vörumerkið
Sinnerup er danskt fjölskyldufyrirtæki með yfir 50 ára sögu í hönnun, gæðum og lífsstíl. Fyrsta verslunin var opnuð af Poul Sinnerup í Holstebro árið 1971, og frá þeim degi hefur markmiðið verið skýrt – að skapa innblástur og gleði í kringum heimilið og daglegt líf.
Í dag er Sinnerup eitt þekktasta lífsstílsmerki Dana og sameinar tímalausa norræna hönnun, vandaða framleiðslu og hlýtt viðmót. Vöruframboðið spannar allt frá húsgögnum og heimilisvörum til tísku og gjafavara – þar sem áherslan er á falleg smáatriði, notagildi og góða stemningu.
Eigin vörulínur fyrirtækisins, Furniture by Sinnerup og Sinnerup Design, eru hannaðar af dönskum hönnuðum í Silkeborg og endurspegla hina einstöku norrænu stílsýn: einfaldleika, hlýju og náttúrulegt flæði.
Sinnerup trúir því að innblástur byrji með fólki – og að heimilið eigi að vera staður þar sem hönnun, þægindi og sjarmi mætast á fallegan hátt.
