Allt á einum stað – fyrir heimilið, þig og þá sem þú elskar!
Akasíu brauðbretti með hníf
5.990 kr.
Aðeins eitt eintak eftir ‼️
Vandað og afar hagnýtt skurðarbretti úr akasíuviði með snjallri mylsnu-söfnun sem auðvelt er að tæma. Brettið hentar sérstaklega vel fyrir brauð og gerir bæði undirbúning og frágang einfaldari.
Akasíuviður er náttúrulegt og endingargott efni, og þar sem um náttúrulegan við er að ræða getur æðamynstur og litbrigði verið mismunandi – hvert bretti er því einstakt. Með brettinu fylgir brauðhnífur sem liggur vel í hendi og hentar vel til daglegrar notkunar.
Stærð:
Skurðarbretti: L 37 × B 15,5 × H 2 cm
Brauðhnífur: L 35 × B 3,5 cm
Efni: Akasíuviður / málmur
Umhirða:
Skurðarbrettið má ekki fara í uppþvottavél né liggja í bleyti. Þvoið með volgu vatni og þurrkið vel. Til að vernda viðinn gegn þurrki er gott að bera á hann matarolíu eða aðra viðurkennda viðarolíu reglulega.
Við mælum með að brauðhnífurinn sé þveginn í höndunum, ekki í uppþvottavél.
| Vörumerki | Sinnerup |
|---|
