Vel valið fyrir þig, heimilið og þá sem þér þykir vænt um 🤎
Lýsing
3D Wave vasi frá Sinnerup er skúlptúralegur keramikvasi með áberandi bylgjulaga áferð sem gefur honum einstakan karakter. Formið skapar fallega dýpt og gerir vasann að áberandi skrautmun jafnt einn og sér sem með skrautgreinum eða gerviblómum.
Fallegur á borði, skenk eða í gluggakistu og nýtur sín vel í flestum rýmum.
Stílhreinn hlutur sem setur listrænan svip á rýmið.
Efni: Keramik
Stærð M: 20,7 × 20,5 × 25,3 cm
Stærð L: 21,5 × 21,5 × 35,1 cm
Umhirða: Þurrkið af með mjúkum, rökum klút. Forðist sterk hreinsiefni og uppþvottavél.
Athugið: Vasinn er ekki vatnsheldur og hentar því fyrir gerviblóm, þurrkuð blóm eða skrautgreinar.
Nánar
| Vörumerki | Sinnerup |
|---|
Um vörumerkið
Sinnerup er danskt lífsstílsmerki með fallega hluti sem gefa heimilinu persónulegan svip. Hjá Motivo veljum við meðal annars glös, bakka, kertastjaka, lampa og aðrar gjafa- og heimilisvörur frá Sinnerup, með áherslu á hlýja stemningu og smáatriði sem gleðja.
Sinnerup fæst aðeins hjá Motivo á Íslandi. Hér getur þú fundið gjöf fyrir heimilið, einhvern sem þér þykir vænt um eða sjálfa þig. Skoðaðu það sem er fáanlegt í netversluninni eða kíktu til okkar að Brúarstræti 3 á Selfossi. Við hjálpum þér að velja og raða saman.
