fbpx

Heitt súkkulaði með sjöstrand

Sjöstrand á Íslandi deildi með Trendnet í fyrra dásamlegri uppskrift af heitu súkkulaði sem er tilbúið á aðeins fáeinum mínútum. Drykkur sem kemur okkur í jólaskapið!

Flestir nýta Sjöstrand mjólkurflóarann til að búa til sinn uppáhalds kaffibolla á einfaldan hátt  – en það sem færri vita er að hann er einnig kjörinn til að gera heitt súkkulaði.

Fólk getur valið sitt uppáhalds súkkulaði í verkið. Til að gefa ykkur hugmyndir voru sérfræðingarnir hjá Omnom fengnir til að koma með nokkrar uppástungur úr sínu úrvali í verkið. Þau mældu mest með Tanzania 70% súkkulaðinu og bættu við að Dark Milk of Tanzania og Milk of Nicaragua myndu einnig henta fyrir þá sem vildu ljósara súkkulaði. Að lokum tóku þau fram að Caramel + Milk súkkulaðið væri málið fyrir mestu sælkerana.

Uppskriftin er sáraeinföld:
?Brjótið niður súkkulaði í nokkuð fína bita (ca. 50 gr.)
⚙️ Skiptið um þeytara í flóara – notið þann einfalda sem finna má í loki
?Hellið mjólk í flóara upp að efra striki (ca. 3 dl.)
?Setjið flóarann í gang (ca. 2 mín)

Hér getur þú verslað þennan frábæra mjólkur/súkkulaði flóara hjá okkur

Við notum kökur til að bæta síðuna okkar. Geymdar eru kökur með heimsóknartölfræði sem eingöngu eru notaðar af Motivo.