Lýsing
Svartur hringlaga bakki úr stáli sem hægt er að nota t.d. til að bera fram mat og drykki, undir krydd og olíur í eldhúsinu eða undir kerti og skrautmuni í stofunni.
Stærð: 32 cm
Steel-Function er danskt merki sem hefur meira en 50 ára reynslu af hönnun og framleiðslu á hágæða heimilisvörum úr ryðfríu stáli og postulíni. Klassískar og nytsamlegar eldhúsvörur sem standast tímans tönn.