Lýsing
Kubus 4 er klassískur, stílhreinn kertastjaki sem passar fyrir 4 kerti. Hann er glæsilegur á borði og það er afar skemmtilegt að dressa hann upp í aðventu búning. Stærðin á honum er 14×14 cm
By Lassen framleiðir hönnun eftir tvo þekktustu arkitekta dana, bræðurna Mogens Lassen og Flemming Lassen. Lassen bræðurnir voru einstaklega hæfileikaríkir og hlutu þeir fjölmörg verðlaun fyrir hönnun sína og arkitektúr. By Lassen er fjölskyldufyrirtæki og er þekktast fyrir að framleiða Kubus kertastjakann sem hannaður var af Mogens Lassen árið 1962.