Lýsing
Þriggja laga fjölnota andlitsgríma úr pólyester og bómull. Við mælum með að handþvo grímuna daglega. Gott er að eiga 2 grímur til skiptanna.
65.9% polyester 34.1% bómull
Humble er sænskt fyrirtæki stofnað af tannlækni. Frá árinu 2013 hefur Humble & co leitt litla byltingu í vörum til persónulegra nota. Allar vörur eru hannaðar og framleiddar undir ströngu eftirliti tannlækna og eru vistvænar. Humble gildin eru fagmennska og einfaldleiki í sátt við fólkið og umhverfið.
Tekið af Covid.is:
Grímur eru mikilvæg viðbót við einstaklingsbundnar sóttvarnir, og nauðsynlegar þar sem erfitt er að virða fjarlægðarmörk. Munum að þær koma ekki í stað handþvottar og annarra sóttvarna.
Það er nauðsynlegt að nota grímuna rétt, annars gerir hún ekkert gagn og veitir falskt öryggi.
Gríman þarf að hylja bæði munn og nef til að stöðva dropasmit.
Margnota grímur þarf að þvo minnst daglega.
Það er mikilvægt að snerta grímurnar sem minnst og þvo hendur eða sótthreinsa eftir snertingu.
Þannig koma grímurnar að mestu gagni.
Við erum öll almannavarnir