fbpx

Iittala Essence rauðvínsglös 45 cl. 2 stk

6.495 kr.

Á lager

Lýsing

Falleg og stílhrein glös úr Essence línunni frá iittala sem koma 2 saman í fallegum gjafakassa. Essence línan frá Iittala var hönnuð af Alfredo Häberli árið 2001. Hugmynd Häberli var sú að hanna glasalínu með eins fáum glösum og mögulegt væri fyrir allar gerðir vína. Þessi einföldu en á sama tíma dálítið öðruvísi glös hafa vakið mikla lukku enda eru þau gríðarlega vinsæl. Essence vörurnar eru munnblásnar í Iittalaverksmiðjunni í Finnlandi.

Iittala er finnskt hönnunarfyrirtæki sem hannar og framleiðir skrautmuni og borðbúnað fyrir heimili. Saga Iittala hófst árið 1881, en til að byrja með framleiddi fyrirtækið margskonar glervörur. Í byrjun 20. aldar færði fyrirtækið út kvíarnar með því að hefja framleiðslu á leirvörum og síðar á stálvörum. Hugmyndafræði Iittala er mótuð að miklu leiti eftir hönnuðinum Kaj Franck sem sagði að allir hlutir ættu að vera nytsamlegir, endingargóðir og hagnýtir.

Frekari upplýsingar

Litur

Glært

Stærð

45 cl.

Vörulína

Eldhúsvörur, Essence, Glös

Vörumerki

Iittala

Iittala Essence rauðvínsglös 45 cl. 2 stk

Vörunúmer: AO123 Flokkar Merkingar , , ,

Nýlega skoðaðar vörur

Engin vara fannst

Við notum kökur til að bæta síðuna okkar. Geymdar eru kökur með heimsóknartölfræði sem eingöngu eru notaðar af Motivo.