Hvernig gerum við sumarkjólinn að vetrarflík?
Við eigum örugglega flestar fjöldann allan af kjólum inní skáp sem við vorum duglegar að nota í sumar en erum ekki alveg að treysta okkur í þá núna þegar kólna tekur í veðri. En það er svo sannarlega hægt að nota þá áfram núna í vetur. Við getum t.d. farið í rúllukragabol innanundir kjólana og gallbuxur eða þykkar sokkabuxur og leggings. Jakkapeysur eða heilar peysur sem eru aðeins rúmar eða lausar á manni eru fullkomnar yfir kjóla og t.d. grófa skó á móti.
Prófið ykkur áfram, farið í eitthvað innanundir eða utanyfir kjólana og þið eruð „good to go“ þó það sé farið að lækka á hitamælinum.
Hér fyrir neðan getið þið fundið vörur hjá okkur sem hægt er að leika sér með og nota með þessum hætti.