Velkomin í Motivo

Hópabókanir

Við bjóðum stóra sem smá hópa velkomna í heimsókn og tökum vel á móti ykkur með afslætti, freyðivíni og stemningu á barnum okkar.

Motivo verslunin

Gerið ykkur glaðan dag

Það eina sem þið þurfið að gera er að finna tíma sem hentar hópnum. Þið getið komið á opnunartíma eða á öðrum tíma ef þið viljið hafa búðina alveg út af fyrir ykkur. Þið mætið til okkar, fáið afslátt af vörum í versluninni, freyðivínsglas og frábæra þjónustu. Í gegnum tíðina hafa saumaklúbbar, vinnustaðir, vinkonuhópar og parahópar átt frábæra stund hjá okkur.

Saumaklúbbar Vinnustaðir Vinkonuhópar Parahópar Árshátíðarhópar Afmælishópar

Léttar veitingar á staðnum

Við tökum á móti hópnum með léttum veitingum og stemningu á barnum okkar. Motivo er með freyðivín á dælu og létta drykki í flöskum, ásamt fyrsta flokks kaffivél þar sem við töfrum fram gæðakaffi, cappuccino, latte og annað gott. Kvöldið byrjar því vel um leið og þið gangið inn.

Freyðivíná dælu
Léttir drykkirí flöskum
GæðakaffiAlvöru kaffivél
Motivo verslunin Motivo verslunin
Hópaafsláttur

Allir í hópnum fá sérstakan afslátt af vörum verslunarinnar og freyðivínsglas við komuna.

Við miðum við hópa sem telja 10 eða fleiri. Ef þið eruð færri, hafið endilega samband og við sjáum hvað við getum gert fyrir ykkur.

Sendið okkur bókunarbeiðni hér að neðan og við finnum tíma sem hentar ykkar hópi. Einnig er hægt að hafa samband á hopar@motivo.is eða í síma 482 1700.

Bókunarbeiðni