fbpx

Moomin sumarlínan – Together

Sumarævintýri Múmínálfanna á ströndinni heldur áfram, en myndefni bollans byggir á sögunni Moomin on the Riviera eftir Tove Jansson.

Vörulínan inniheldur krús, disk og tvær skeiðar og kemur, líkt og vanalega, í takmörkuðu upplagi.

Múmínfjölskyldan fer í frí á frönsku rivíerunni. Þar sem Snorkstelpan vinnur pening í spilavíti getur fjölskyldan látið fara vel um sig á lúxushóteli. Þegar peningurinn klárast er fjölskyldan rekin af hótelinu og neyðist til að tileinka sér bóhemískan lífsstíl og finna sér næturstað undir bátnum sínum.

Múmínpabbi kynnisti auðugum aðalsmanni sem dreymir um líf sem fátækur listamaður. Þau bjóða honum að gista með þeim undir bátnum en hann fær þó fljótt leið á fyrirkomulaginu. Múmínálfarnir geta ekki búið að eilífu undir bát svo þau ákveða að sigla aftur heim í Múmíndal.

Með sumarlínu ársins 2021 heldur sumarævintýri Múmínálfanna áfram. Teikningarnar byggja á myndasögunni ,,Moomin on the Riviera” eftir Tove Jansson.

Útgáfudagur a bolla og disk: 25. maí 2021

Útgáfudagur á skeiðum: mai/júní 2021

Hér fyrir neðan getur þú verslað vörurnar hjá okkur í vefversluninni:

Við notum kökur til að bæta síðuna okkar. Geymdar eru kökur með heimsóknartölfræði sem eingöngu eru notaðar af Motivo.